Skilmálar


 

Upplýsingar um seljanda

Hringur Verzlun starfar undir fyrirtækinu Svartur O sf. Kt. 450707-1040. Virðisaukaskattsnúmer: 138692. Heimilisfang: Reykjamörk 7. Sími: 7770711. Netfang: overzlun@overzlun.is

Pantanir

Hringur Verzlun áskilur sér rétt til að hætta við pantanir, t.d. vegna rangra upplýsinga um verð eða magn. Hringur Verzlun áskilur sér einnig rétt til þess að hætta að bjóða upp á vörur án fyrirvara. Áskilinn er réttur til þess að staðfesta pantanir símleiðis.

Skattar og gjöld

Öll verð í vefverslun innihalda 24% vsk. en sendingakostnaður bætist síðan við áður en greiðsla fer fram.

Afhending vöru

Allar pantanir eru afgreiddar næsta virka dag eftir pöntun. Sé varan ekki til á lager mun þjónustufulltrúi hafa samband og tilkynna um áætlaðan afhendingartíma vörunnar. Af öllum pöntunum dreift af Íslandspósti gilda afhendingar-, ábyrgðar- og flutningsskilmálar Íslandspóst um afhendingu vörunnar. Hringur Verzlun ber samkvæmt þessu enga ábyrgð á týndum sendingum eða tjóni sem kann að verða á vöru í flutningi. Ef að vara týnist í pósti eða verður fyrir tjóni frá því að hún er send frá Hringur Verzlun til viðkomandi er tjónið á ábyrgð kaupanda. Fyrirtækin Dropp og Íslandspóstur sjá um dreifingu á vörum frá Hringur Verzlun. Við sendum beint heim að dyrum fyrir 900 krónur eða 600 krónur á næsta pósthús eða Dropp stöð. Ef að verslað er fyrir 10.000,- eða meira þá fellur sendingarkostnaðurinn niður nema annað sé tekið fram.

Að skipta og skila vöru

Veittur er 14 daga skilafrestur við kaup á vöru gegn því að framvísað sé sölureikningi sem sýnir með fullnægjandi hætti hvenær varan var keypt. Varan þarf að vera ónotuð, í fullkomnu lagi og í sínum upprunalegu óskemmdu umbúðum þegar henni er skilað. Ef vara er innsigluð má ekki rjúfa innsiglið. Við skil á vöru er miðað við það verð sem varan var seld á.

Gölluð vara

Sé vara gölluð er viðskiptavinum boðin ný vara í staðinn og greiðum við allan sendingarkostnað sem um ræðir. Eða endurgreiðum ef þess er krafist. Að öðru leyti vísast til laga um neytendakaup nr. 40/2003 og laga um neytendasamninga.

Trúnaður

Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar þær upplýsingar sem hann gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar verða ekki undir neinum kringumstæðum afhentar þriðja aðila.

Lög og varnarþing

Samningur þessi er í samræmi við íslensk lög. Rísi mál vegna hans skal það rekið fyrir Héraðsdómi Suðurlands.